Helgina 8-10 ágúst var haldin hin árlega handverkssýning á Hrafnagili. Móttökur á smyrsli Purity Herbs, Kraftaverk, var með eindæmum.
Hér er að finna helstu upplýsingar um smyrslið:
Þetta smyrsl inniheldur sérútbúna jurtablöndu sem er einstaklega bakteríuhamlandi, mýkjandi og græðandi. Hún nýtist því við hinum ýmsu kvillum eins og td. brunasár, skrámur, skordýrabit, marbletti, exem, bólur, kláða, ígerðir, fótasvepp og svo framvegis. Með því að bera smáskammt í munn má draga verulega úr hæsi, hósta og særindum í hálsi. Einnig mjög gott á munnangur og til að bera á td. eftir endajaxlaaðgerð.
Þetta 100% náttúrulega smyrsl inniheldur möndluolíu og býflugnavax, bætt með flókinni samsetningu íslenskra jurta sem þekkt er fyrir að vera sótthreinsandi og græðandi.
Notkun: Bera skal þunnt lag af smyrslinu, tvisvar til þrisvar yfir daginn, eða eftir þörfum.
Samsetning: Melaleuca alternifolia (Australian tea tree) og Calendula olea innihalda sveppahamlandi efni. Chelidonium majus er bakteríuhamlandi. Achillea millefolium og Spirea ulmaria eru verkjastillandi og bólgueyðandi. Capsella bursa pastoris hefur strekkjandi eiginleika og hefur góð áhrif á gyllinæð |