
|
Í mars hafði samband við okkur ung stúlka sem vildi endilega deila með okkur reynslusögu sinni. Puriyt Herbs hefur fengið leyfi til að birta bréf hennar í heild sinni hér á heimasíðu Purity Herbs.
"Ég heiti Berglind og verð bara að óska ykkur til hamingju. Purity Herbs vörurnar eru að mínu mati bestu húðvörur sem ég hef nokkurn tíma prufað. Ég hef reyndar ekki notað hárvörurnar, en hlakka til þess og hef hugsað mér að þær verði næstu kaup hjá mér.
Ég byrjaði ung að farða mig og nota mikið og margs konar húðvörur. Ég var nefnilega með frekar mikið af hormónabólum, sem ég skammaðist mín alveg rosalega fyrir á þeim tíma. Þessi gífurlega mikla notkun mín minnkaði reyndar aðeins með aldrinum en nú fyrir stuttu ( ég er 19 ára gömul) fór húðin mín á algert mótþróaskeið. Ég fékk rosalega þurrka á fótum, fitugt hár og húð á andliti og fleiri leiðindi. Vissi ekkert hvort ég ætti að reyna að gefa húðinni meiri eða minni raka. Svo endaði þetta á rosalegum útbrotum og kláða í andlitshúð.
Fyrst vissi ég ekki að þetta væri ofnæmi, hélt bara að nú væri ég komin með svona líka rosalegann þurrk, og notaði Eftir rakstur kremið ykkar sem kærasti minn átti og það sló á kláðann og þurrkinn í 2-3 daga þegar EKKERT annað hafði virkað. Svo fékk ég ofnæmislyf, en hef getað sleppt því að nota þau ef ég nota bara húðvörurnar frá ykkur, enga sápu í sturtu, bara náttúrulegar olíu, sjampó sem gefa sig út fyrir að vera ekki ofnæmisvaldandi of engin hársprey né froðu.
Mér finndist að enginn ætti að kvelja húðina sína með dýrum vörum sem skemma ónæmiskerfið og húðina sjálfa heldur nota frá upphafi bara vörur frá ykkur. AUGLÝSIÐ AUGLÝSIÐ! Þetta eru FRÁBÆRAR vörur og svo þarfar í öllu þessu gerviefnaflóði."
PH þakkar Berglindi kærlega fyrir að gefa sér tíma til að senda okkur frásögn sína. Það gleður okkur mikið að heyra þegar vörur okkar breyta lífi fólks.
Kveðja, Starfsfólk Purity Herbs
|