Fös 19.okt 2007 13:48
Matur-inn 2007

Bás Purity Herbs
Um helgina leiddu saman hesta sína helstu matvælafyrirtæki norðanlands þegar sýningin Matur-inn 2007 var haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri.

Purity Herbs var með stóran glæsilegan bás, sem var eins og á fyrri sýningum ársins, fallega grænn og áberandi. Mikil aðsókn var og viljum við þakka öllum þeim sem litu við hjá okkur.
Á þessari sýningu tók PH forskot á jólasæluna og bauð Jólagrenibaðolíu á tilboði sem viðskiptavinir voru afar ánægðir með. Það er því ljóst að greniilmurinn mun svífa um á heimilum Akureyringa og nágranna þeirra í næstu byggðum á aðventunni. Einnig kynnti PH nýja vöru sem þróuð var af framleiðslustjóra okkar, Rannveigu Hrafnkelsdóttur, í samstarfi við Friðrik V. Um er að ræða Salatolíu sem skerpir bragð og dregur fram það besta í matnum. Salatolían er einstaklega góð út á salöt, með hrísgrjónum og öðrum heilsuréttum. Þessi vara er sú fyrsta af fleiri væntanlegum vörutegundum í samstarfi okkar við Friðrik V.

Tvær konur, báðar búsettar á Akureyri, voru dregnar út í lukkupottinum okkar. Þær Valgerður Jónsdóttir og Paula Pálsdóttir fengu fallega gjafakörfu fulla af Purity Herbs vörum.

~~~~~~

Last weekend Purity Herbs participated in an exhibition called “Matur-inn 2007” which was held in one of two collages in Akureyri. As in our previous exhibitions this year PH booth was, bright and eye-catching.
PH would like to take this opportunity to thank all the people who visited us those two days. At this exhibition PH offered “Christmas Pine-bath oil” at a special price. PH also presented a new product, Salad Oil, which was developed by our product manager, Rannveig Hrafnkelsdóttir, on behalf of the restaurant Friðrik V.

Two ladies won baskets full of Purity Herbs products just by putting there name and phone number in a lottery-box after buying some PH products. We congratulate and thank them for participate!


Vörurnar

Rannveig framleiđslustjóri

veriđ ađ kynna vörurnar

Erla Ösp
Ţri 04.maí 2010 11:39 Belgium & Holland distributer
Ţri 06.apr 2010 13:08 New distributer in France // Nýr dreifingarađili í Frakklandi - www.purityherbs-islande.fr
Ţri 12.ágú 2008 11:04 Kraftaverk (fyrir hesta og menn)
Fös 16.maí 2008 08:54 Reynslusaga
Fös 19.okt 2007 13:48 Matur-inn 2007
Mán 03.sep 2007 12:53 Uppskera og Handverk 2007
Mán 03.sep 2007 12:38 Sumar 2007
Fös 08.jún 2007 10:49 Frábćr reynsla af Andlits Serum
Ţri 13.mar 2007 17:18 Announcement
Mán 26.feb 2007 15:00 Purity Herbs distributor in Sweden
Mán 26.feb 2007 14:58 Purity Herbs distributor in Norway
1 2 Nćsta frétt 
© 2007 Purity Herbs Webdesign Design EuropA