Saga Fyrirtækisins

 -

Purity Herbs var stofnað á Akureyri 1994.  Stofnendur þess voru Ásta Kristín Sýrusdóttir og André Raes. Núverandi eigandi er Ásta Kristín Sýrusdóttir.

Kveikjan að stofnun Purity Herbs var af einskærri af tilviljun. André átti áhugamál sem tók hug hans allan en það var að búa til krem, olíur og te úr jurtum og öðrum náttúruefnum.

Eftir að hann fluttist til Íslands opnaðist honum nýr heimur í þessu sambandi því þar óx fjöldinn allur af heilnæmum, villtum og hreinum jurtum sem hann gat nýtt í þessa tilraunastarfsemi sína. Afraskturinn fór til vina og vandamanna til að reyna að draga úr húðkvillum og bæta ástand húðarinnar.

Á þessum tíma, árið 1993 vann Ásta á leikskóla í bænum og þar var lítill drengur sem var með mikil útbrot og exem.  Ásta fékk leyfi hjá móður drengsins til  að bera á hann eitt af þessum jurtakremum.  Árangurinn lét ekki á sér standa, á nokkrum dögum voru útbrotin næstum gróin og húðin nánast orðin heilbrigð. Þetta einstaka krem hét þá og heitir enn ”Undrakrem”.

Afi drengsins, Böðvar Jónsson apótekari í Akureyrarapóteki undraðist mjög þennan einstaka árangur og kom að máli við Ástu.  Hann bauð þeim strax aðstöðu í apótekinu til að hefja framleiðslu á þessum sérstöku náttúruvörum.

Böðvar hvatti þau til að stofna fyrirtæki um þessa framleiðslu svo fleiri fengju að njóta góðs af Undrakreminu og öðrum græðandi kremum.

Með ráðgjöf, hvatningu og hjálp Böðvars og Iðnþróunarfélagsins var Purity Herbs stofnað og hjólin fóru að snúast.

Í dag framleiðir Purity Herbs yfir 55 mismunandi tegundir af náttúruvörum sem henta fyrir alla aldurshópa
og allar húðgerðir.

Akureyri, perla norðursins er staðsett á norðanverðu landinu og er með hreinni stöðum í heiminum sem endurspeglast í hreinleika varanna.

Purity Herbs sérhæfir sig í framleiðslu á 100% náttúrulegum snyritvörum*.

vörurnar fást á eftirfarandi stöðum:

       

  

Einnig í blómabúðum og heilsuvöruverslunum um land allt.

 Ásta Kristín
Sýrusdóttir

  

Sólarlag við Akureyri 

  -

 
Súlur yfir Akureyri

 -

 -
Akureyri 

 

 -  -  -
 -

Purity Herbs Cosmetics
Furuvellir 5 - 600 Akureyri - Iceland
Tel: +354 462 3028 - Fax: +354 462 3069
E-mail:
info@purityherbs.is

Back to top 

© 2007 Purity Herbs Webdesign Design EuropA